Fara beint í efni

Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír. Sjá verðin

Netbókarinn

Bókhald fyrir verktaka

3 mín. lestur

Margir vinna sem verktakar í stað þess að vera á launaskrá, hvort sem það er í byggingariðnaði, þjónustu eða sérfræðistörfum. Þá berð þú sjálfur ábyrgð á sköttum, gjöldum og skilum.

Verktaki vinnur við fartölvu á heimaskrifstofu

Það sem er sérstakt í rekstrinum

  • Þú sendir reikninga í stað þess að fá launaseðil.
  • Verkkaupar skila verktakamiðum vegna greiðslna til þín.
  • Skattar og gjöld eru ekki dregin af greiðslunum, svo þú þarft að leggja til hliðar.
  • Í eigin rekstri þarftu að reikna þér endurgjald.

VSK

Þegar veltan fer yfir 2.000.000 kr. á tólf mánaða tímabili þarf að skrá reksturinn á VSK-skrá, nema starfsemin sé undanþegin. Þá leggur þú VSK á reikninga en getur líka dregið frá VSK af kostnaði.

Hvað bókarinn þinn á að gera fyrir þig

  • Stemma verktakamiða við eigin tekjur.
  • Sjá um laun eiganda og staðgreiðslu á réttum tíma.
  • Skila VSK og framtali á réttum tíma.
  • Segja þér hvað þú þarft að leggja til hliðar.

Ertu með bókara sem hentar ekki?

Ef þú færð óvæntan skattreikning á hverju ári eða veist ekki hvað bókhaldið kostar er kominn tími á breytingu. Við sjáum um skiptin.

Hvernig getum við hjálpað?

Flestir verktakar falla undir Byrjun, 29.900 kr. á mánuði án VSK. Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír.

Spurningar og svör

Hver skilar verktakamiða?

Sá sem greiðir verktakanum skilar miðanum. Bókarinn þinn stemmir hann við tekjurnar þínar.

Þarf ég að vera á VSK-skrá?

Já, ef veltan fer yfir 2.000.000 kr. á tólf mánaða tímabili og starfsemin er ekki undanþegin.