Fara beint í efni

Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír. Sjá verðin

Netbókarinn

Bókhald fyrir rafvirkja

3 mín. lestur

Rafvirkjar vinna allt frá smærri viðgerðum upp í stór verk, oft með nemum og starfsfólki. Bókhaldið þarf að halda utan um efnið, verkin og launin.

Rafvirki vinnur við rafmagns spjald með skrúfjárni

Það sem er sérstakt í rekstrinum

  • Rafmagnsefni keypt fyrir mörg verk í einu.
  • Mælitæki, verkfæri og bílar sem eru eignfærð.
  • Laun starfsfólks og nema.
  • Stór verk með reikningum eftir framvindu.

VSK og endurgreiðsla

Viðskiptavinir geta fengið endurgreidd 35% af virðisaukaskatti af vinnu á verkstað við íbúðarhúsnæði. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að hlutfallið lækki í 20%. Til þess þarf reikningurinn að sundurliða vinnu og efni.

Hvað bókarinn þinn á að gera fyrir þig

  • Tengja efniskaup við verk.
  • Skila VSK, launum og verktakamiðum á réttum tíma.
  • Hjálpa þér að setja upp reikninga sem sundurliða vinnu og efni.
  • Sýna þér afkomu hvers verks.

Ertu með bókara sem hentar ekki?

Ef þú sérð ekki hvaða verk skila hagnaði, eða færð stöðuna bara einu sinni á ári, er kominn tími á breytingu. Við sjáum um skiptin.

Hvernig getum við hjálpað?

Rafvirkjar í eigin rekstri falla flestir undir Byrjun og rafverktakar með starfsfólk undir Vöxt eða Rekstur.

Spurningar og svör

Sjáið þið um laun nema?

Já, laun starfsfólks og nema eru hluti af launavinnslunni.

Má draga VSK af mælitækjum frá?

Já, ef reksturinn er á VSK-skrá má almennt draga innskatt af tækjum og efni frá.