Fara beint í efni

Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír. Sjá verðin

Netbókarinn

Viðskiptaskilmálar

Þessir skilmálar gilda um bókhaldsþjónustu Netbókarans ehf., kt. 561126-0620, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hallo@netbokarinn.is (hér eftir „við“).

1. Samningur

Þú færð skriflega tillögu og verð í tölvupósti. Samningur kemst á þegar þú samþykkir tillöguna í tölvupósti eða sendir okkur gögn til vinnslu. Það þarf ekki að undirrita neitt. Tillagan og þessir skilmálar gilda saman. Ef þeim ber ekki saman gildir tillagan.

2. Áskrift og verð

Þjónustan er mánaðarleg áskrift á þeirri leið sem kemur fram í tillögunni. Gildandi verð eru á netbokarinn.is og eru án VSK. Vinna sem fellur utan leiðarinnar er verðlögð skriflega áður en hún hefst. Útgefnir sölureikningar teljast til fylgiskjala. Ársreikningur og skattframtal félagsins eru á föstu verði samkvæmt verðskrá fyrir rekstrarár sem við færum. Ófært bókhald fyrri tímabila, ársreikningar fyrir ár sem aðrir færðu, leiðréttingar eldri ára og kærur eru verðlagðar sérstaklega. Samskipti við Skattinn vegna skila sem við sjáum um eru innifalin. Ef fylgiskjöl fara reglulega yfir mörk leiðarinnar látum við þig vita og leggjum til aðra leið áður en verðið breytist. Verðbreytingar tilkynnum við með minnst 30 daga fyrirvara.

3. Greiðslur

Við sendum kröfu í netbanka í byrjun hvers mánaðar. Eindagi er 10 dögum eftir gjalddaga og dráttarvextir reiknast eftir eindaga. Greiðir þú árlega færðu 10% afslátt. Ef þú segir upp áður en árið er liðið er greiðslan endurreiknuð á mánaðarverði án afsláttar og mismunurinn endurgreiddur. Áskrift að Payday greiðir þú beint til Payday og hún er ekki hluti af verði okkar. Sé krafa ógreidd 30 dögum eftir eindaga megum við gera hlé á vinnunni eftir skriflega viðvörun.

4. Uppsögn

Áskriftin er ótímabundin. Þú getur sagt henni upp í tölvupósti með eins mánaðar fyrirvara, miðað við mánaðamót. Það er hvorki stofngjald né binditími. Við lok samnings klárum við verk uppsagnarfrestsins, afhendum gögnin og aðstoðum nýjan bókara. Payday-aðgangurinn er þinn og við fjarlægjum okkar notanda úr honum.

5. Þín ábyrgð

Þú berð ábyrgð á því að gögnin sem þú sendir séu rétt og fullnægjandi og berist tímanlega, í síðasta lagi 5 virkum dögum fyrir skiladag. Þú berð ábyrgð á greiðslu skatta og gjalda. Við berum ekki ábyrgð á álagi, sektum eða vöxtum sem rekja má til gagna sem berast seint, eru röng eða vantar.

6. Okkar ábyrgð

Við vinnum verkin af fagmennsku og í samræmi við lög um bókhald og góða bókhaldsvenju. Ef okkur verða á mistök leiðréttum við þau án endurgjalds. Bótaábyrgð okkar nær aðeins til beins tjóns og að hámarki þeirrar fjárhæðar sem þú hefur greitt okkur síðustu 12 mánuði. Óbeint tjón, svo sem tapaður hagnaður, er ekki bætt.

7. Gervigreind

Við styðjumst við gervigreind í vinnunni, til dæmis við að lesa og flokka fylgiskjöl, stemma af og undirbúa drög. Bókari fer alltaf yfir niðurstöðuna og ber ábyrgð á henni. Ekkert er sent til Skattsins eða annarra án yfirferðar bókara. Við notum aðeins gervigreindarþjónustu sem notar ekki gögnin þín til að þjálfa gervigreindarlíkön.

8. Trúnaður og persónuvernd

Við gætum fulls trúnaðar um upplýsingar um þig og reksturinn, líka eftir að samningi lýkur. Þegar við færum bókhald og laun vinnum við persónuupplýsingar fyrir þína hönd, til dæmis um starfsfólk. Þar ert þú ábyrgðaraðili og við vinnsluaðili, og þessi kafli telst vinnslusamningur skv. 28. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar og lögum nr. 90/2018. Við:

9. Breytingar og lög

Breytingar á skilmálunum tilkynnum við í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreining má bera undir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Skilmálarnir gilda frá 21. nóvember 2026.