Fara beint í efni

Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír. Sjá verðin

Netbókarinn

Spurningar

Algengar spurningar

Hvaða bókhaldskerfi notið þið?

Við vinnum í Payday. Ef þú ert í DK, Reglu eða öðru kerfi flytjum við gögnin yfir fyrir þig, og ef þú ert þegar með Payday tengjumst við einfaldlega þínum aðgangi.

Get ég skipt um bókara á miðju ári?

Já. Við sækjum stöðuna frá fyrri bókara og tökum við þar sem frá var horfið.

Hvernig kem ég kvittunum til ykkar?

Þú tekur mynd af kvittuninni í símanum eða áframsendir hana í tölvupósti, og hún fer beint inn í Payday.

Hvernig fara samskiptin fram?

Samskiptin fara fram í tölvupósti og í Payday. Þannig þjónum við fyrirtækjum um allt land og þú þarft aldrei að gera þér ferð.

Er stofngjald eða binditími?

Nei. Það er hvorki stofngjald né binditími og þú getur sagt upp með eins mánaðar fyrirvara. Greiðir þú árlega færðu 10% afslátt.

Er Payday-áskriftin innifalin?

Nei, þú greiðir áskriftina beint til Payday. Þannig átt þú gögnin og aðganginn, alltaf.

Byrjum samtalið

Sendu okkur línu um reksturinn og þú færð skriflega tillögu og verð innan 24 klst. á virkum dögum.

Hafa samband