Bókhald fyrir skrúðgarðyrkju
3 mín. lestur
Skrúðgarðyrkja og garðaþjónusta eru árstíðabundin. Mikið er að gera á sumrin með sumarstarfsfólki, en minna á veturna. Bókhaldið þarf að ráða við þær sveiflur.

Það sem er sérstakt í rekstrinum
- Meiri tekjur og fleira starfsfólk á sumrin.
- Gröfur, sláttuvélar og bílar sem eru eignfærðir.
- Efniskaup, t.d. hellur, mold og plöntur.
- Verk fyrir bæði einstaklinga, húsfélög og sveitarfélög.
VSK
Garðaþjónusta ber virðisaukaskatt. Því þarf að skila VSK reglulega og halda innskatti af tækjum og efni til haga.
Hvað bókarinn þinn á að gera fyrir þig
- Sjá um laun sumarstarfsfólks á réttum tíma.
- Halda utan um tæki og afskriftir.
- Skila VSK á réttum tíma.
- Sýna þér hvernig árið í heild kemur út.
Ertu með bókara sem hentar ekki?
Ef launavinnslan á sumrin er vesen eða þú veist ekki stöðuna fyrr en í lok árs er kominn tími á breytingu. Við tökum við hvenær sem er.
Hvernig getum við hjálpað?
Fyrirtæki með starfsfólk falla flest undir Vöxt eða Rekstur. Laun fyrir allt að 3 eru í Vexti og allt að 6 í Rekstri.
Spurningar og svör
Hvað með sumarstarfsfólk?
Við sjáum um laun, staðgreiðslu og lífeyrisiðgjöld fyrir allt starfsfólk, líka sumarstarfsfólk.
Hvernig eru gröfur og sláttuvélar færðar?
Dýr tæki eru eignir sem eru afskrifaðar yfir nokkur ár.





