Bókhald fyrir verslanir
3 mín. lestur
Verslun snýst um vörur sem koma inn og fara út á hverjum degi. Gott bókhald heldur utan um sölu, vörukaup og birgðir svo þú sjáir hvað reksturinn skilar í raun.

Það sem er sérstakt í rekstrinum
- Dagleg sala í gegnum posa og afgreiðslukerfi.
- Vörukaup frá mörgum birgjum, oft með greiðslufresti.
- Birgðir sem þarf að telja og meta um áramót.
- Starfsfólk í hlutastarfi og á vöktum.
VSK
Flestar vörur bera 24% virðisaukaskatt, en matvæli, bækur og sumar aðrar vörur eru í lægra þrepi, 11%. Ef verslunin selur hvort tveggja þarf afgreiðslukerfið að skipta sölunni rétt svo VSK-skilin verði rétt.
Hvað bókarinn þinn á að gera fyrir þig
- Stemma af posauppgjör og afgreiðslukerfi við bankann.
- Færa vörukaup og fylgjast með ógreiddum reikningum.
- Hjálpa við vörutalningu og birgðamat um áramót.
- Reikna laun og skila staðgreiðslu og VSK á réttum tíma.
Ertu með bókara sem hentar ekki?
Ef þú færð uppgjörið seint eða veist ekki hvað bókhaldið kostar er auðvelt að skipta. Við sækjum gögnin til fyrri bókara og tökum við hvenær sem er á árinu.
Hvernig getum við hjálpað?
Litlar verslanir falla oft undir Vöxt, 59.900 kr. á mánuði án VSK. Stærri verslanir með fleira starfsfólk falla undir Rekstur.
Spurningar og svör
Þarf ég að telja birgðir um áramót?
Já, birgðir eru taldar og metnar í lok rekstrarárs. Við hjálpum þér að gera það rétt.
Get ég skipt um bókara á miðju ári?
Já. Við sækjum gögnin til fyrri bókara og tökum við þar sem frá var horfið.





