Bókhald fyrir leigubílstjóra
3 mín. lestur
Leigubílstjórar eru sjálfstæðir atvinnurekendur, en reksturinn hefur sín sérkenni. Hér eru helstu atriðin sem gott er að hafa á hreinu, svo framtalið verði rétt og ekkert álag komi á eftir á.

VSK og fólksflutningar
Akstur leigubifreiða er undanþeginn virðisaukaskatti. Það þýðir að þú innheimtir ekki VSK af fargjöldum, en getur heldur ekki dregið VSK af kostnaði frá. Það einfaldar málin, en kostnaðurinn þinn er þá með VSK. Ef þú ert með aðra starfsemi samhliða, til dæmis vöruflutninga, getur VSK-skylda gilt um hana. Skipulagðar útsýnisferðir með ferðamenn geta þó borið 11% VSK, svo það borgar sig að halda þeim aðskildum.
Kostnaður sem má draga frá
- Bíllinn: afskriftir eða leiga, tryggingar, viðhald, dekk og þrif
- Eldsneyti eða rafmagn
- Stöðvargjald og þjónustugjöld til stöðvar eða apps
- Leyfisgjöld og gjaldmælir
- Sími og búnaður sem tengist akstrinum
Notarðu bílinn líka í einkaerindum? Þá þarf að skipta kostnaðinum. Akstursdagbók eða skýr gögn um akstur gera það auðvelt og vernda þig ef Skatturinn spyr.
Tekjurnar
Tekjur koma oft frá fleiri en einum stað: stöðinni, appi, kortaþjónustu og reikningsviðskiptum. Gott bókhald stemmir þetta allt af við bankann, svo tekjurnar í framtalinu séu réttar.
Einkarekstur eða ehf.?
Margir leigubílstjórar byrja í einkarekstri, á eigin kennitölu. Þegar reksturinn stækkar getur borgað sig að stofna ehf., meðal annars vegna skatthlutfalla og þess að rekstur og einkafjármál skiljast að. Í báðum tilvikum þarf að reikna sér endurgjald.
Algengustu mistökin
- Framtali skilað of seint, svo álag leggst á
- Kostnaður sem gleymist vegna þess að kvittanir týnast
- Einkaneysla og rekstur á sama korti
Hvernig getum við hjálpað?
Við sjáum um bókhald fyrir leigubílstjóra í leiðinni Byrjun, 29.900 kr. á mánuði án VSK. Þú tekur mynd af kvittuninni og við sjáum um restina, líka framtalið.
Spurningar og svör
Þarf leigubílstjóri að vera á VSK-skrá?
Almennt ekki vegna aksturs leigubifreiða, því hann er undanþeginn VSK. Skipulagðar útsýnisferðir með ferðamenn geta þó borið 11% VSK, og önnur starfsemi getur breytt VSK-skyldunni.
Get ég fengið álag fellt niður?
Stundum, ef framtal er leiðrétt og ástæður eru góðar. Við aðstoðum við þetta og verðleggjum slík mál fyrir fram.
Hvað kostar bókhald fyrir leigubílstjóra?
Flestir falla undir Byrjun, 29.900 kr. á mánuði án VSK. Ársreikningur er sér ef reksturinn er í ehf.





