Fara beint í efni

Enginn stofnkostnaður og fyrsti mánuðurinn frír. Sjá verðin

Netbókarinn

Bókhald fyrir gististaði

3 mín. lestur

Gististaðir fá tekjur í gegnum bókunarsíður, beint frá gestum og stundum frá ferðaskrifstofum. Hver leið hefur sín gjöld og sinn tíma, svo afstemmingar skipta miklu.

Starfsmaður réttir gesti lykil á móttöku gististaðar

Það sem er sérstakt í rekstrinum

  • Tekjur í gegnum bókunarsíður sem draga frá þóknun.
  • Gistináttaskattur sem þarf að innheimta og skila.
  • Miklar sveiflur milli sumars og vetrar.
  • Ræsting, þvottur og viðhald.

VSK og skattar

Gisting er í lægra þrepi virðisaukaskatts, 11%, og það er morgunmatur líka. Salarleiga og sumt annað ber 24%.

Gististaðir með rekstrarleyfi innheimta gistináttaskatt af hverri seldri gistinótt.

Tekjur af skráðri heimagistingu einstaklinga eru skattlagðar sem fjármagnstekjur og um hana gilda sérstakar reglur um skráningu og hámörk.

Hvað bókarinn þinn á að gera fyrir þig

  • Stemma af bókunarsíður og færa þóknanir rétt.
  • Skila VSK og gistináttaskatti á réttum tíma.
  • Reikna laun starfsfólks, líka árstíðarbundins.
  • Skila framtali og ársreikningi innan frests.

Ertu með bókara sem hentar ekki?

Ef útborganir frá bókunarsíðum stemma ekki eða skilin koma á síðustu stundu er auðvelt að skipta. Við tökum við hvenær sem er á árinu.

Hvernig getum við hjálpað?

Lítil gistiheimili falla undir Byrjun eða Vöxt. Stærri gististaðir með starfsfólk falla undir Rekstur.

Spurningar og svör

Hvaða VSK er af gistingu?

Gisting og matur eru í lægra þrepi, 11%. Salarleiga og sumt annað ber 24%.

Getið þið stemmt af bókunarsíðurnar?

Já, við stemmum útborganir og þóknanir af við bókanirnar.